22. apríl 2026

Basil lime - ferskur og sumarlegur kokteill

Þessi ferski, græni og sumarlegi Basil Lime kokteill er fullkominn þegar þig langar í eitthvað létt, bragðmikið og fallegt í glasi. Uppskriftin er einföld og auðvelt að aðlaga hana, hvort sem þú vilt hafa hana með eða án áfengis.

Uppskrift
6–8 fersk basilblöð
4 cl vodka (eða gin ef þú vilt meira bragð)
2 cl ferskan lime-safa
1–2 cl sykursíróp (eða hunang)
Sódavatn
Ísmolar

 

Aðferð:
Settu basilblöðin í glas eða hristara og myljið létt (ekki kremja of mikið, þá getur bragðið orðið beiskt). Bættu við vodka, lime-safa og sykursírópi. Settu ís út í og hristu eða hrærðu vel. Helltu í glas og toppaðu með sódavatni. Hrærið aðeins. Það er líka skemmtilegt að setja gin í stað vodka og jafnvel bæta 2-4 gúrkusneiðum út í.

Ef þú vilt gera Basil Lime kokteilinn óáfengan þarftu í raun bara að einfalda uppskriftina örlítið án þess að tapa ferskleikanum. Vodkan eða ginið er einfaldlega sleppt og í staðinn má annað hvort auka örlítið magn af sódavatni eða bæta við smá auka lime-safa til að halda góðu jafnvægi í bragðinu.

Hægt er að halda í fyllinguna til dæmis með því að nota örlítið meira af sykursírópi eða hunangi svo drykkurinn verði ekki of beittur. Að öðru leyti helst uppskriftin óbreytt: basilblöðin eru mulin létt, lime og sæta bætt út í, ís settur í glasið og toppað með sódavatni. Útkoman er jafn ferskur og sumarlegur drykkur, en léttari og hentar öllum.

    Reyka vodka

    Vodka

    Reyka vodka

    40% • 1000 ml

      Bombay Sapphire

      Gin

      Bombay Sapphire

      40% • 700 ml

        BAGL basil, gin og límóna

        Blöndur

        BAGL basil, gin og límóna

        4,5% • 6 x 330 ml

        Opnunartími vefverslunar

        Hægt er að leggja inn pöntun allan sólarhringinn

        Starfsfólk sinnir tiltekt og afgreiðslu á vörum frá kl. 12:00 til 21:00 alla daga.

         Pantanir sem gerðar eru eftir kl. 21:00 fara í afgreiðsluferli daginn eftir.

        Nánari útskýringar á afhendingu er að finna undir Afhendingarmöguleikar

        Hagar Wine B.V.

        Kt. 610624-9950
        Javastraat 12
        3016CE Rotterdam
        Netherlands

        Hagar hf.

        Umboðsaðili Hagar Wine B.V. í virðisaukaskatti
        Kt. 670203-2120
        Vsk. nr. 153172

        Hagkaup

        Hagkaup er þjónustuaðili Hagar Wine B.V.
        Kt. 430698-3549
        Skútuvogi 5
        104 Reykjavík