Þjónusta
Afhendingarmöguleikar
Sendingargjöld á höfuðborgarsvæðinu:
Sækja í Hagkaup Skeifunni: 0 kr.
Sækja vörur í aðrar Hagkaups verslanir og Olís verslanir: 590 kr.
Sækja vörur á aðra afhendingarstaði Dropp: 890 kr.
Heimsending milli kl. 18:00 og 22:00: 1.490 kr.
Afhending
Öll afgreiðsla á vörum úr vefversluninni fer fram með Dropp.
Hægt er að leggja inn pöntun allan sólarhringinn. Starfsfólk Veiga sinnir tiltekt og afgreiðslu á vörum frá kl. 12:00 til 21:00 alla daga. Pantanir sem gerðar eru eftir kl. 21 fara í tiltektar- og afgreiðsluferli daginn eftir.
Afhending á vörum fer fram á opnunartíma þess afhendingarstaðar Dropp sem valinn var í kaupferlinu. Afhendingarstaður Dropp á þjónustuborði Hagkaups Skeifunni er opinn allan sólarhringinn.
Dropp býður upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu (Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn) alla daga vikunnar.
Dropp afhendir vörur samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu ef pantað er fyrir kl. 12:00, þær eru annars sendar daginn eftir.
Afhending á landsbyggðinni fer fram næsta virka dag ef pantað er fyrir kl. 12:00.
Afhending utan Íslands
Fyrir pantanir og afhendingu á vörum utan Íslands, vinsamlegast sendið fyrirspurn á veigar@veigar.eu.