.jpg&w=1080&q=75)

Rauðvín
Chateau Musar
Kröftugt og sætt.
14% • 750 ml
Verð:
Vörunúmer: 159160
Land
Líbanon
Hérað
Beeka Valley
Styrkleiki
14%
Eining
750 ml
Þrúga
Cabernet Sauvignon Carignan Cinsault
Hentar vel við
Nautakjöti Ostum Pottréttum Villibráð
Tappategund
Korktappi
Hitastig
16 – 18 °C
Chateau Musar er eitt helsta “költ” vín heimsins. Það kemur frá afar ólíklegum stað, Bekaa-dalnum í Líbanon um 30 kílómetra suðaustur af Beirut, og á sér mjög harðsnúinn hóp aðdáenda. Hochar-fjölskyldan lagði grunninn að Chateau Musar í kringum 1930 og þrátt fyrir borgarastyrjaldir og stríðsátök hefur henni tekist að framleiða vín sín ár eftir ár, með tveimur undantekningum, 1976 og 1984. Það þarf gífurlegan eldmóð til að framleiða heimsklassavín undir þessum kringumstæðum og þegar breska víntímaritið Decanter hóf að útnefna “mann ársins” árið 1984 var það Serge Hochar frá Musar sem fékk þann heiður í fyrsta skipti.
Múrsteinsrautt að lit og angan vínsins er mjög sérstök, eitthvað svo framandi og villt sem verður vart staðsett, nema kannski í Beeka-dalnum. Sultukenndur ávöxtur, sólber, þroskaðar plómur, fíkjur, maukuð rauð epli, leður, lakk, mykja, hesthús, indverskt krydd og balsamik. Þykkur með þægilega þroskuðum ávexti í munni og kryddað af kanill, lakkrís og dökku súkkulaði ásamt fullt af þurrkuðum sætum dökkum berjaávexti og töluverður reykur og jörð eins og alltaf í Musarnum mikla. Fersk sýra og þroskuð mild tannin í stórskemmtilegu eftirbragi. Við elskum þetta vín og segjum að þetta sé fullkomið vín með íslenskri villibráð.