

Rauðvín
El Coto Crianza
Hefur kirsuberjarauðan lit og aðlaðandi angan af dökkrauðum ávexti, skógarberjum, plómum, kirsuberjum og kryddjurtum. Fresk sýra og miðlungs létt fylling en þroskuður og heitur ávöxtur koma vel fram í bragði og kryddið gefur örlítinn sætukeim ásamt vanillu og vott af dökku súkkulaði. Jarðartónar eru í eftirbragði sem og mjúk og fín tannín.
13% • 750 ml
Verð:
Vörunúmer: 157953
Land
Spánn
Hérað
Rioja
Styrkleiki
13%
Eining
750 ml
Þrúga
Tempranillo
Hentar vel við
Lambakjöti Ostum Pylsum Svínakjöti
Tappategund
Skrúfutappi
Hitastig
16 – 18 °C
El Coto er einn helsti framleiðandi Rioja-vína. Vínhúsið er ekki í hópi þeirra gömlu og klassísku á svæðinu heldur hefur byggt upp orðspor sitt og markað með áherslu á jöfn og góð gæði og náð þeirri stöðu þannig sem það hefur í dag.
Hefur kirsuberjarauðan lit og aðlaðandi angan af dökkrauðum ávexti, skógarberjum, plómum, kirsuberjum og kryddjurtum. Fresk sýra og miðlungs létt fylling en þroskuður og heitur ávöxtur koma vel fram í bragði og kryddið gefur örlítinn sætukeim ásamt vanillu og vott af dökku súkkulaði. Jarðartónar eru í eftirbragði sem og mjúk og fín tannín. Vínið er látið þroskast í amerískum eikartunnum í lágmark 12 mánuði og minnst 6 mánuði í flösku áður en sett er á markað. Ekta tapasvín, til dæmis með skinku og ostum en einnig grilluðu kjöti.