

Rauðvín
Louis M Martini Cabernet Sauvignon
Þetta er massívt og mikið vín, dökkt að lit, ilmríkt af svörtum berjaávexti, eik og kryddjurtum. Öflugt og þétt í bragði, plómusulta, sólber og bláber ásamt eikaráhrifum og jólakryddum svona til að styðja við ávöxtin. Kröftug meðalfylling, þroskuð tannín og flott eftirbragð.
Verð: 4.099 kr.
Vörunúmer: 157948
Land
Bandaríkin
Hérað
Kalifornía
Styrkleiki
14%
Eining
750 ml
Þrúga
Cabernet Franc Cabernet Sauvignon Merlot Petite Sirah
Hentar vel með
Lambakjöti Léttari villibráð Nautakjöti Pottréttum Villibráð
Tappi
Korktappi
Kjörhitastig
16 – 18 °C