

Rauðvín
Montes Limited Selection Cabernet Sauvignon
Dökkplómurautt. Ilmar af sólberjalaufi, plómum, evkalyptus, rifsberjum, sultuðum sólberjum eða jafnvel Créme de Cassis-líkjör, hindberjasultu og austurlenskum kryddum. Það er svo rétt ríflega meðalbragðmikið í munni með góða sýru og fínleg tannín. Það er þétt og þurrt og hefur keim af sólberjum, rifsberum, hindberjum, krækiberjasultu, evkalyptus, kakónibbur og tóbakslauf.
14,5% • 750 ml
Verð:
Vörunúmer: 157957
Land
Chile
Hérað
Valle de Central
Styrkleiki
14,5%
Eining
750 ml
Þrúga
Cabernet Sauvignon Carmenere
Hentar vel við
Lambakjöti Léttari villibráð Nautakjöti Ostum Villibráð
Tappategund
Korktappi
Hitastig
16 – 18 °C
Carmenére er að verða eins konar þjóðarþrúga Chile þótt hún komi upprunalega frá suðvesturhluta Frakklands. Í þetta Limited Selection vín frá Montes eru Cabernet og Carmenere-þrúgur frá Colchagua-dalnum notaðar þar sem Montes var meðal þeirra fyrstu að nema land á síðari hluta síðustu aldar.
Aurelio Montes hefur verið einn áhrifamesti víngerðarmaður Chile síðustu tvo áratugina. Að undanförnu hefur sonur hans smám saman verið að taka aukna ábyrgð á víngerð hússins og sjálfur tók Aurelio í apríl 2019 við formennsku í samtökum víniðnaðarins í Chile, Vinos de Chile.
Dökkplómurautt að lit og ríflega meðalopna angan af sólberjalaufi, plómum, evkalyptus, rifsberjum, sultuðum sólberjum eða jafnvel Créme de Cassis-líkjör, hindberjasultu og austurlenskum kryddum. Það er svo rétt ríflega meðalbragðmikið í munni með góða sýru og fínleg tannín. Það er þétt og þurrt og hefur keim af sólberjum, rifsberum, hindberjum, krækiberjasultu, evkalyptus, kakónibbur og tóbakslauf. Langt og mjúkt og virkar amk þúsundkalli dýrara en það er. Virkilega góð kaup (eins og reyndar alltaf hjá Montes) og hafið það með bragðmeiri hversdagsmat, pasta, pottréttum og grill.