159199_No1_Saint-Cernin_Blanc_750ml.jpg
    N°1 Saint-Cernin Blanc

    Hvítvín

    N°1 Saint-Cernin Blanc

    Vínið er gyllt að lit, gerjað og þroskað á eik sem gefur víninu bökuð einkenni, brioche, möndlu-eplatart og smjör ásamt ferskju og apríkósu, í munni þétt og ríkulegt, þó nokkur sýra og míneralískt, grillaðar hezlihnetur og jafnvel smá myntu tónar bætast við, feitt, þétt og mikið vín í frábæru jafnvægi.

    14% • 750 ml

    Verð:

    Vörunúmer: 159199

    Land

    Frakkland

    Hérað

    Limoux

    Styrkleiki

    14%

    Eining

    750 ml

    Þrúga

    Chardonnay

    Hentar vel við

    Alifuglum Fiski Skelfiski

    Tappategund

    Korktappi

    Hitastig

    8 – 10 °C

    Róbert Wessman hefur lengi haft brennandi áhuga á gæða vínum og víngerð. Hann leitaði í um fimmtán ár að heppilegum stað til að hefja víngerð og fyrir valinu varð Château de Saint-Cernin. Château de Saint-Cernin er kastali frá 12. öld í Bergerac héraði í Frakklandi. Þar hefur vínrækt verið stunduð öldum saman á einstökum ræktarskikum.

    Róbert Wessman heillaðist af sögu og vínmenningu Bergerac héraðsins og því varð Château de Saint-Cernin fyrir valinu. Hann lagði upp með skýra sýn og mikla trú á vaxtarmöguleikum Château de Saint-Cernin. Hann og meiðeigandi hans, Ksenia Wessman, bjuggu til metnaðarfulla viðskiptaáætlun og ákváðu aðendurlífga og betrumbæta forna víngerðararfleifð setursins.

    Þróun og vöxtur Château de Saint-Cernin heldur áfram á sama tíma og mikill metnaður er lagður í að framleiða vín á heimsmælikvarða frá sérvöldum frönskum landsvæðum, vínáhugamönnum til ánægju.

    Við fylgjum framtíðarsýn okkar og treystum á sama tíma á sérþekkingu þeirra færustu.

    Innsæi og dómgreind ráða för; Hjá Maison Wessman hefur reynslan sýnt okkur að merkilegustu afrekin eru unnin með því að leita hins óvænta og sjá möguleika í því ókomna. Hágæða árangur undir leiðsögn þeirra bestu; Við vitum líka að framtíðarsýn er bara byrjunin. Framúrskarandi árangur krefst ástríðu og að treyst sé á færni þeirra sem fremstir eru á sínu sviði. Þess vegna eru vínin okkar framleidd undir handleiðslu hins heimsfræga vínsérfræðings Michel Rolland og teymis af heimsins bestu vínþjónum.

    Vínið er gerjað og þroskað í eikartunnum í 9 mánuði, fölgyllt að lit, mjög opið í ilmi af framandi ávöxtum og hvítum blómum ásamt ristuðum og rjómalöguðum nótum. Bragðið er afskaplega í góðu jafnvægi, djarft og fersk og ansi viðarlegt, miklir sítrusávextir sem bara kalla eftir örðum sopa.

    N°1 Saint-Cernin Blanc er afar skaldgæft hvítvín framleitt úr nokkrum tunnum af Chardonnay ( 1200 flöskur ). Víngerð og ræktun er í Limoux sem er við rætur Pýrenafjallgarðsins í suð-vestur Frakklandi, „Terroir“ sem vínunnendur um allan heim þekkja. Château Saint-Cernin á 3 hektara land sem eru í La Serpent þorpinu.

    Vínið er gyllt að lit, gerjað og þroskað á eik sem gefur víninu bökuð einkenni, brioche, möndlu-eplatart og smjör ásamt ferskju og apríkósu, í munni þétt og ríkulegt, þó nokkur sýra og míneralískt, grillaðar hezlihnetur og jafnvel smá myntu tónar bætast við, feitt, þétt og mikið vín í frábæru jafnvægi.

    Opnunartími vefverslunar

    Hægt er að leggja inn pöntun allan sólarhringinn

    Starfsfólk sinnir tiltekt og afgreiðslu á vörum frá kl. 12:00 til 21:00 alla daga.

     Pantanir sem gerðar eru eftir kl. 21:00 fara í afgreiðsluferli daginn eftir.

    Nánari útskýringar á afhendingu er að finna undir Afhendingarmöguleikar

    Hagar Wine B.V.

    Kt. 610624-9950
    Javastraat 12
    3016CE Rotterdam
    Netherlands

    Hagar hf.

    Umboðsaðili Hagar Wine B.V. í virðisaukaskatti
    Kt. 670203-2120
    Vsk. nr. 153172

    Hagkaup

    Hagkaup er þjónustuaðili Hagar Wine B.V.
    Kt. 430698-3549
    Skútuvogi 5
    104 Reykjavík