

Rauðvín
Trivento Malbec Reserve
Það hefur meðaldjúpan, fjólurauðan lit og meðalopna angan þar sem finna má rauð sultuð ber, brómber, krækiber, lakkrís (og jafnvel salmíak-lakkrís sem minnir á Fisherman’s Friend), málm og kryddjurtir. Það er svo þurrt, með góða sýru, fíngerð tannín og keim af krækiberjum, brómberjum, lakkrís, rauðum og sultuðum berjum, málmi og kryddjurtum.
Verð: 2.599 kr.
Vörunúmer: 157952
Land
Argentína
Hérað
Mendoza
Styrkleiki
13%
Eining
750 ml
Þrúga
Malbec
Hentar vel með
Grillmat Grænmetisréttum Lambakjöti Svínakjöti
Tappi
Skrúfutappi
Kjörhitastig
16 – 18 °C